Dýrheimar
Dýrheimar halda úti hlaðvarpi sem fjallar um hin ýmsu málefni tengd hundum og köttum með áherslur samfélagsins í forgrunni. Fjallað er um það sem eigendur þurfa til að annast dýrin sín með öruggum hætti, tryggt velferð þeirra og heilsu, bæði andlega og líkamlega.
Episodes

May 5, 2026
May 5, 2026
57 min
Í hlaðvarpinu ræða Theodóra, dýrahjúkrunarfræðingur og Andrea, dýralæknir um ofnæmi, áhrif og hvað sé til ráða fyrir hunda og ketti með umhverfis- og eða fæðuofnæmi.

Mar 2, 2026
Mar 2, 2026
34 min
Anna Margrét, stjórnarmaður Kattavinafélags Íslands sem rekur starfsemi Kattholts kíkti til okkar í spjall um starfsemi Kattholts og ættleiðingu katta í tilefni alþjóðlegs dags ættleiðinga katta þann annan mars.

Feb 12, 2026
Feb 12, 2026
56 min
Viðtal við Sunnevu Eggertsdóttur, dýralækni. Sunneva hefur áralanga reynslu og viðbótarnám í tannheilsu hunda og katta og vinnur hún í fullu starfi við að koma tannheilsu þeirra í betra ástand.

Nov 3, 2025
Nov 3, 2025
47 min
Helga Hjartardóttir, dýralæknir og annar eigenda Animalíu kom í spjall til okkar um þjónustuna sem allir gætu þurft á að halda en enginn vill þurfa að nýta. Animalía er fyrsta gæludýrasjúkrahúsið á Íslandi sem er opið allan sólahringinn.

Oct 20, 2025
Oct 20, 2025
36 min
Við fengum Elísabetu dýralækni til þess að kynna Dýraþjónustu Reykjavíkur fyrir okkur, Elísabet hefur víðtæka reynslu af dýralæknastörfum á öllum sviðum og sinnir nú einnig heimaþjónustu til dýraeigenda.

Aug 29, 2025
Aug 29, 2025
58 min
Viðtal við Kolbrúnu Örnu, dýrahjúkrunarfræðing um Hundahlaupið 2025, forsögu, samvinnu hunds og eiganda og hvaða tækifæri eru úti fyrir bætta vellíðan og ummönun hunda.

May 15, 2025
May 15, 2025
31 min
Viðtal við Inam Rakel dýralækni á Dýralæknastofu Reykjavíkur og sérstaka kisuáhugakonu! Inam heldur úti instagram aðganginum "kisuhornid" á instagram og deilir þar fróðleik fyrir áhugasama um málefni tengd kisum!

Apr 1, 2025
Apr 1, 2025
31 min
Viðtal við Heiðrúnu Huld lögreglukonu sem er með löggæsluhundinn Skara. Spjall um lögregluhunda, þjálfun á löggæslu- og vinnuhundum og almennt um hundahald!

Mar 17, 2025
Mar 17, 2025
1 hr 10 min
Viðtal við Ingibjörgu, annan eiganda Dýrheima og Jóhönnu Líf um stofnun Dýrheima, hvað hefur breyst, þróunina og hvað sé framundan!

Dec 20, 2024
Dec 20, 2024
19 min
Theodóra, dýrahjúkrunarfræðingur og Eygló Anna, meðlimur Dýrfinnu fara yfir nokkur atriði varðandi áramótin, hegðun hræddra dýra og ráðstafanir.







